veturinn 2013-2014

Blogg um veturinn 2013-2014

 

íslenska:

Í íslensku lærðum við stafsetningu en í stafsetningu lærum við að skrifa rétt, Í málfræði lærum við fallbeygingu og stigbreytingu orða. Í íslensku vorum við líka mikið í ferilritun en þar semjum við sögu eða ljóð og svo gefum við söguna eða ljóðið út það finnst mér mjög gaman.

Stærðfræði

  Í stærðfræði erum við búin að vera að læra mikið um  deilingu, margföldun, plús og mínus og líka hlutföll. Í stærðfræði erum við líka búin að gera margar kannanir og próf. En ég er líka búin að læra hvað negatífar tölur eru og líka hvað tölfræði snýst um mér finnst mjög gaman að læra nýja hluti sérstaklega í stærðfræði

Enska

Í ensku erum við búin að vera að gera verkefni sem heita annarsvegar  My  favorite animal og My best friend. Í My favorite animal sem var fyrra verkefnið áttum við að skrifa um uppáhalds dýrið okkar, hvernig það leit út hvað það borðaði og af hverju það var uppáhaldsdýrið okkar. Í seinna verkefninu skrifuðu við um my best friend en þar áttum við að skrifa hvernig hann leit út og af hverju hann var besti vinur okkar.

Í útileikjum er mjög gaman við erum oftast í leikjum eins og brennó og skotbolta en stundum líka í mannráni og fleiri skemmtilegum leikjum.

Benjamín dúfa

Við erum líka búin að læra um Benjamín dúfa og það er líka rosa gaman við lásum bókina og fengum svo vinnubók sem við  gerðum allskonar verkefni uppúr svo þegar við vorum búin með verkefnabókina og að lesa Benjamín Dúfu þá horfðum við á myndina, hún var mjög skemmtileg en sorgleg.

Geitungar

Við höfum líka verið að læra um geitunga hjá Elínu Ingu þar lásum við bók um geitunga og gerðum allskonar verkefni við gerðum líka bók sem hét Geitungar á Íslandi þar settum við myndir og upplýsingar um geitunga.

Norðurlöndin

Við höfum líka verið að læra um Norðurlöndin það komu nemar til okkar og létu okkur gera allskonar verkefni tengd norðurlöndunum t.d áttum við að skrifa um Draumalandið okkar og svo teikna mynd um það svo var okkur líka skipt í hópa og fengum land sem við áttum að gera um við áttum annað hvort  að gera plakat, bók eða powerpoint en hópurinn minn fékk Grænland og Færeyjar og gerðum við 2 plaköt. Þetta var mjög skemmtilegt og veit ég nú mikið um Norðurlönd

Verk og list

Við erum líka búin að vera í verk og list en uppáhalds fagið mitt þar eru saumar. Þar bjuggum við til kodda fyrst þæfðum við ull til að setja framan á koddann og svo saumuðu við hliðarnar við ullina og saumuðum svo bakhliðina á en skildum eftir smá gat þar sem við tróðum fyllingunni inní og saumuðu hana saman og gengum frá koddanum.

Þetta er búið að vera mjög skemmtilegt ár en samt sem áður hlakkar mig til að koma aftur í sjöunda bekk.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband